個人檔案Litli geimurinn minn相片部落格清單 工具 說明
2月14日

Póstkort frá Grikklandi

Jæja haldiði ekki að blogg-service-ið sé hrokkið í gang hjá mér.  Og ekki á verri stað en í Aþenu, Grikklandi.  Hef haldið kynningu og setið fyrir svörum inní fundarherbergi með nokkrum illa rökuðum, háværum og keðjureykjandi Grikkjum.  Ég held ég þurfi að kaupa mér nokkra nikótínplástra á leiðinni heim til að trappa mig niður.  Ekki beint það sem flesu-hóstaeftirköstin mín þurftu á að halda.
En hvað get ég sagt um Grikkland.  Jú hef ekki komist í að skoða nein söfn eða menningarminjar, heldur bara séð svona morgun traffíkina og síðan kvöld traffíkina.  Hérna er annars alltaf traffík.  Þetta er ekki skipulagt kaos, þetta er bara kaos.  Hérna gera menn hlutina bara einhvern vegin, hvort sem það er að labba yfir götu, ákveða hvort þeir eigi að keyra yfir á rauðu eða grænu eða leggja gangstéttir.
Local maður hérna sem er búinn að keyra mig til og frá hóteli talar alveg hreint út:  "Á Grikklandi viltu ekki búa, þetta er góður ferðamannastaður, búið."  Spillingu segir hann vera gegnumsýrða alls staðar, allt frá götusóparanum og upp í æðstu embættismenn.  Við sáum einu sinni sjúkrabíl koma æðandi að ná í einhvern sjúkann, þá sagði minn maður.  Ahh það er eins gott að þessi hafi pening á sér, annars er hann pottþétt dauður.  Svo reykir hver einanst kjaftur hérna... alveg ótrúlegt, á skrifstofunni, í fundarherbergjum, í leigubílum, örugglega í strætóum líka.  Svo segir local maðurinn mér að Aþena sé umkringd af fjöllum sem hleypa ekki menguninni út.  Já heyrðu ég gleymdi einu :) hérna búa um 5 milljónir manna og hér eru örugglega um 10 milljónir bíla.  Það er nefnilega svo sniðugt hérna að til að minnka bílaumferð í kringum miðbæinn, tóku hin spilltu yfirvöld uppá því að leyfa einungis bílum með oddatölu-bílnúmer á mán-mið-fös, en slétttölu-bílnúmer á þri-fim-lau-sun.  Með þessu ætluðu þau að minnka umferð.  En í staðinn eiga allir tvo bíla, með sínu hvoru bílnúmerinu odda og slétt.
En þetta er nú allt sagt áður en ég hef getað skoðað svona helstu túristastaðina þannig að það getur nú vel verið að ég skipti rækilega um skoðun. 
Legg af stað heim á föstudagsmorguninn þannig að ég hef tvö kvöld til að gera eitthvað skemmtilegt.
Nóg í bili, H.
8月4日

Af hlaupaafrekum

Hellú.  Hljóp 5 km í gær í rigningu og roki í hinu svokallaða Vatnsmýrarhlaupi sem hér áður fyrr hét eitthvað í líkingu við Sri Shinmoy friðarhlaup.  En well, nafnið dofnar sem og hálfrar mínútu friðarþögnin sem hér áður fyrr var, sem nú er orðið að 8 sek þögn nokkurra í bland við skvaldur flestra.  Það var annars tekið gríðarlega á því, var fyrirfram búinn að stilla mig andlega á að gefa allt í botn, hlaupa hvern km á 4 mín sem gekk svona nokkurn veginn eftir; fyrsti á 4:04, næsti á 4:09 svo náði ég að taka vel á því í lokin og skilaði mér í mark á 20:28 sem allavega mínútu hraðar en mitt besta í þessari vegalengd.  Þrefalt húrra fyrir mér: húrra húrra húrra.
Það er allavega verið að æfa á fullu fyrir Reykjavíkurmaraþon þar sem við Árni frændi ætlum að hvetja hvorn annan í gegnum alla 42km, það verður fróðlegt að vita hvernig það fer.
Meðfylgjandi er mynd af mér, birt með  - leyfi frá hlaup.is.
 
7月6日

Stór áfangi í pallagerð.

Jæja, hengingarólin komin um hálsinn, boðskortin komin í umferð og því er bara að bretta upp ermarnar.
Tókst að ljúka því að koma pallinum á sinn stað þannig að þetta er allt að gerast.
Alltaf best að vinna undir pressu.
 
H.
6月12日

Sumarið framundan.

Þá er maður loksins búinn með spænskuna.  Örlítil seinkun miðað við upphaflega áætlun þar sem ég ætlaði að vera búinn miklu fyrr.  En vegna einingagræðgi og ögn af áhuga á framandi löndum, þá ákvað ég að láta slag standa.  Var annars bara fínn tími, sat tíma með fólki með mjög misjafnan bakgrunn, allt frá kjarnokueðlisfræðingum og uppí ræstitækna.  En sem sagt skólinn frá í bili og vinnan blasir við, reyndar nóg að gera þar...eða svosum heima for that matter.
Er að leggja lokahönd á innanstokksmuni, hurðir, mála, flísaleggja og slíkt og var núna síðast að setja upp undirstöður undir pallinn sem meðfylgjandi mynd sýnir.
 
Meira síðar.
6月2日

Dóttirin malar pabba sinn í hlaupi

Ég og Eva María tókum þátt í heilsuhlaupi krabbameinsfélagsins í gær og stúlkan heldur betur malaði kallinn, sbr www.hlaup.is:
66   22:31   Eva María Hrólfsdóttir           1999
67   22:32   Hrólfur Gestsson                   1969
Hún var heldur betur lukkuleg, fékk eiginhandaráritun frá Miss world, mynd af sér með goðinu og til að toppa þá þá vann hún rómantískan kvöldverð á Hótel sögu ásamt hótelgistingu og morgunverði fyrir tvo!! 
Nú er bara að bíða og sjá hver hinn heppni fylgdarmaður verður.
5月30日

Sumarið er tíminn ... til að blogga

Jæja hvað gerir maður seint á síðkvöldi, þegar uppáhaldsspjallfélaginn er farinn að sofa og þegar maður á að vera að gera eitthvað allt annað eins og að gera heimaverkefni í spænsku fyrir morgundaginn;  jú auðvitað, maður bloggar, enda ekki komið nema rétt tæpt ár síðan síðast.  (ég veit allavega að Ella verður glöð)
Já það er nú svosum frá ýmsu að segja, skólinn búinn, þ.e. 15 eininga kvótinn, og er ég bara að lesa mig niður með smá hressandi spænskunámskeiði sem gefur jú 3 einingarnar sem mig vantaði fyrir jól.  Ég gat samt ekki setið á mér, leið eins og kú sem sleppt var út að vori er ég búinn að stökkva hér um með afturlappirnar upp í loft, að laga íbúðina mína.  Komast loks inní stofu fyrir ryki og drullu.  Tja kannski ekki drullu en fullt af ryki og ókláruðu parketi, og óspörsluðum og ómáluðum veggjum.  Þannig að ég ákvað að strax eftir hífandi rallið á miðvikudagskvöld með vinnunni að það skyldi hafist handa og ekki látum linnt fyrr er íbúðin væri orðin spling bling.
Og ef það er eitthvað sem ég geri vel, þá er það að vinna eins og brjálæðingur, (með æðimisjöfnum árangri þó) sem ég og gerði, og í þetta sinn tel ég að árangurinn hafi ekki látið á sér standa.  Myndir ætti að vera hægt að finna einhvers staðar hér á síðunni.
Heyriði eitt dáldið fyndið, vinnufélagi mnn (ég sver það var ekki ég) sett auglýsingu um gitargrip.net á www.b2.is.  Það skipti engum togum en á 5 dögum fóru 10.000 manns inn á síðuna sem er 1/5 frá því ég byrjaði með hana 2003.  Svo segja menn að markaðsstjórar séu óþarfir.
Jæja spænskan lærir sig ekki sjálf.
Adios.  
8月27日

Úr öskunni í eldhúsið

Þá er maður búinn að koma eldhúsinu í nothæft ástand enda ekki seinna vænna.  Strax farinn að missa nætursvefn yfir stærðfræðilegri greiningu sem hefur nú þegar skollið á með fullum þunga.
Nothæft eldhús skv. skilgreiningu minni er "...helluborð sem getur hitað samtíimis kartöflur og sænskar kjötbollur ásamt því að hafa vask sem bæði gefur og tekur heitt vatn og er því nothæfur er til að vaska herlegheitin upp að lokinni máltíð".  Og í gærkvöldi tókst mér að standast kjötbolluprófið með glans.  Eins og myndirnar sýna komu að þessu verki jafnt smáir sem stórir, lítið sem mikið menntaðir tölvumenn enda um óvenju flókna en jafnframt vandaða smíð að ræða.
Nú get ég með öðrum orðum sest niður að skólabókum með góðri samvisku og ylmettan maga fram á næsta vor (eða þannig).
8月11日

Veggur tilbúinn

Þá er blessaður veggurinn tilbúinn.  Búið að vera heldur betur púsluspil.  Enda er smíðagræjusafnið farið að skyggja á tölvugræjusafnið.  Ég réttllæti þetta með sparnaði á einum iðnaðarmannsklukkutíma pr græju.
En allavega eldhúsið bíður ósamsett eftir mér í vöruhúsi IKEA, fór í gær með innanhússarkitektinum móður minni til að halda í höndina á mér og festi kaup á einni slíkri.  Svo ætla ég að skrúfa herlegheitin saman á morgun ásamt Evu Maríu sem góðfúslega tekur sér frí úr leikskólanum til að aðstoða föður sinn.  Svo má nú ekki gleyma Bigga sem ætlar að kíkja á morgun og galdra þetta upp með mér.  Það er eins gott að halda sig í góðri fjarlægð þegar við Biggi komumst í framkvæmdagírinn enda tveir geðsjúkir þar á ferð.  Jæja nóg í bili, en farið ekki langt, fleiri myndir í vændum.
8月9日

Spurning...

Hvað gerir maður ef allt er fullt af óuppvöskuðu uppvaski en ekkert eldhús til að vaska upp í?.  Nú maður drífur sig bara í að smíða það og vaskar svo upp.
Grind+einangrun+rafmagn+pípulögn komið.  Ég vil nú ekkert vera að monta mig en er þetta ekki alveg ógeðslega flott?.  Á morgun er það svo krossviðurinn og svo eldhúsið í framhaldi.  Eins gott, diskarnir eru farnir lykta dáldið illa ;(.
8月7日

Ahhh, ylur í gólfi

Þá er maður byrjaður að kynda kofann, kominn tími til.  Jens pípari er mikill listamaður eins og sést á meðfylgjandi mynd. 
Ég er annars að slá upp grind í eldhúsinu og ætla að reyna að klára það í dag.
 
8月4日

Nýjar myndir

Þá er maður loks búinn að fjárfesta í myndavél til að mynda herlegheitin, búið að skipta um skólp, dren, jarðveg, pípulagnir, gólf og ég veit ekki hvað og hvað, og bara eftir að henda upp gluggum og eldhúsi auk einhvers smálegs.  Skólinn er jú handan við hornið og ekki viljum við standa í þessu öllu þá, er það? neeeei.
Þá er bara að bretta upp ermarnar, píparinn kemur og klárar gólfhitalagnirnar á eftir (ahhhh hvað það verður gott) þá má svona segja að það hljóti að verða "uphill from there".  Svo ef framkvæmdirnar verða of yfirþyrmandi þá get ég alltaf farið á rifsberjafyllerí hérna í garðinum og mætt svo ferskur morguinn eftir.
p.s. Biggi vinur og Raggi bróðir, til hamingju með afmælið.
7月5日

Staðan...

Þá er ég búinn að hreinsa múrhúðina af gólfinu og búinn að negla hitalagnir í stofuna, slaufaði þetta fram og aftur eftir kúnstarinnar reglum, eins gott að halda einbeitingunni skarpri, þetta er eitthvað sem þú vilt ekki þurfa að rífa upp og gera aftur believe me.  Svo gerðist dáldið skemmtilegt í gær eða hittó, tók klósettið burt því ég ætla að setja niðurfall á baðið og mixa það inní skólprörið, þá var mér tjáð af píiparanum að sameiginlega skólplögnin sem fer í gegnum baðið mitt væri farin í sundur og því þarf að panta moldvörpumyndavél til að mynda þetta og síðan að skipta um þetta, e.t.v. eitthvað út á plan.  Jæja ég er sem sagt klósettlaus á meðan og þá er sko gott að hafa góðan garð :)  ég og Simbi góðir saman úti í náttúrunni.  OK ég skal halda geðinu í nokkra daga yfir þessu helv en ekki mikið lengur þannig að best að drífa þetta af.
Bæ í bili.
p.s. lesendur mega alveg með read-confirm-comment :)
6月22日

Af byggingarmálum.

Jæja, íbúðin búin að vera hitalaus í á þriðja dag.  Gott að fara í heita sturtu svona af og til.  Merkilegt hvað heimilið manns verður hrörlegt svona gólf og hita laust.  Píparinn Hrólfur fór í Vantsvirkjann í dag og keypti það sem vantar uppá að koma eina tengda ofni íbúðarinnar í gang.  Náði sambandi við múrara í dag sem ætlar að múra gólfið mitt uppá nýtt um miðjan júlí, þannig að þá hef ég tíma á meðan til að leggja allar hitalagnir í gólfið, ræsi á klósettinu og allt annað sem þarf, ætlaði að reyna að fá hann fyrr en svosum gott að gefa sér góðan tíma, fríið svosum framundan.

Tók annars ákvörðun í dag um geyma ákvörðun um gólfefni þangað til aðrar innréttingar eru komnar, þetta er að gera mig geðveikan að velja þetta.

Jæja best að halda áfram að hlusta á Duran.  Myndir bíða enn um sinn.

6月16日

sko...

kallið mig bara væminn.  Ég er ekki mikið fyrir tónlistarmyndbönd en þetta ætti að fá óskarverðlaun, alveg ótrúlega flott... http://www.sonymusiceurope.com/cgi-bin/multimedia/wmwax?snymusicaomawm.fplive.net&snymusicaoma/video/900020000018323.wmv

Með hamarinn að vopni...

Jæja þá tókst mér endanlega að eyðileggja íbúðina mína í gær.  Byrjaði ásamt þrælduglegum bróður (hmmm... þetta er í ættinni?) klukkan 9 í gærmorgun, leigði 16 kg brothamar og byrjaði að brjóta upp gólfið.  Klukkan 10 í gærkvöldi fannst mér þó nóg gert, var þá búin að brjóta upp allt gólf nema hluta stofunnar og baðherbergið.

En sjaldan er hægt er eyðileggja of mikið.  Á laugardaginn ætla ég svo að klára að gera eldhúsið tilbúið undir tréverk, svo fer sunnudagurinn í að steypa í stæstu götin, ryksuga íbúðina, henda filltteppinu á sem ég hirti af manninum uppi, bera fram sófann og sjónvarpið til að ég geti haft dóttur mína um helgina :)

Skelli inn myndum fljótlega

5月20日

Skólinn búinn.

Jæja ég hafði það af.  Taldi þó bara 3 grá hár í morgun, ótrúlegt en satt.  Lauk árinu með 9 í verklega verkefninu, sem þýðir 0,1 hærri meðaleinkunn en fyrir jól, og ég sem hélt að ég hefði klúðrað þessu gjörsamlega.  Svona er maður alltaf að vanmeta sjálfan sig.  Aldrei að gefast upp, það sýnir sig enn og aftur.

Jæja byggingaframkvæmdir eru næstar á dagskrá, reif niður 50 ára gamlar pípulagnir þurfti samt að lúta í parket fyrir þeirri hörðustu þrátt fyrir hálftíma átök.  Owell slípirokkur kosta bara 1990 í Húsasmiðjunni þannig að það verður bara næsti leikur.

Jæja vildi bara deila þessu með þeim eina sem kíkir hér inn.  Komdu bara sem oftast aftur :)

5月11日

Firsta bloggið mitt

Blogg.

Jæja 6 dagar eftir af verkefninu mínu, "Lífrænt.is" eða "með skít undir nöglunum" eins og við kjósum að kalla okkur.  Annars hafa komið upp ýmis nöfn á okkur í hóp 06, namespaceið okkar heitir til dæmis HopeSex.

En stefjurnar skrifa sig ekki sjálfar, best að setja á sig vinnuvetlingana.