| 個人檔案Litli geimurinn minn相片部落格清單 | 說明 |
|
8月4日 Af hlaupaafrekumHellú. Hljóp 5 km í gær í rigningu og roki í hinu svokallaða Vatnsmýrarhlaupi sem hér áður fyrr hét eitthvað í líkingu við Sri Shinmoy friðarhlaup. En well, nafnið dofnar sem og hálfrar mínútu friðarþögnin sem hér áður fyrr var, sem nú er orðið að 8 sek þögn nokkurra í bland við skvaldur flestra. Það var annars tekið gríðarlega á því, var fyrirfram búinn að stilla mig andlega á að gefa allt í botn, hlaupa hvern km á 4 mín sem gekk svona nokkurn veginn eftir; fyrsti á 4:04, næsti á 4:09 svo náði ég að taka vel á því í lokin og skilaði mér í mark á 20:28 sem allavega mínútu hraðar en mitt besta í þessari vegalengd. Þrefalt húrra fyrir mér: húrra húrra húrra.
Það er allavega verið að æfa á fullu fyrir Reykjavíkurmaraþon þar sem við Árni frændi ætlum að hvetja hvorn annan í gegnum alla 42km, það verður fróðlegt að vita hvernig það fer.
Meðfylgjandi er mynd af mér, birt með
|
|
|