Hrólfur Gestsso...'s profileLitli geimurinn minnPhotosBlogLists Tools Help

Blog


    February 14

    Póstkort frá Grikklandi

    Jæja haldiði ekki að blogg-service-ið sé hrokkið í gang hjá mér.  Og ekki á verri stað en í Aþenu, Grikklandi.  Hef haldið kynningu og setið fyrir svörum inní fundarherbergi með nokkrum illa rökuðum, háværum og keðjureykjandi Grikkjum.  Ég held ég þurfi að kaupa mér nokkra nikótínplástra á leiðinni heim til að trappa mig niður.  Ekki beint það sem flesu-hóstaeftirköstin mín þurftu á að halda.
    En hvað get ég sagt um Grikkland.  Jú hef ekki komist í að skoða nein söfn eða menningarminjar, heldur bara séð svona morgun traffíkina og síðan kvöld traffíkina.  Hérna er annars alltaf traffík.  Þetta er ekki skipulagt kaos, þetta er bara kaos.  Hérna gera menn hlutina bara einhvern vegin, hvort sem það er að labba yfir götu, ákveða hvort þeir eigi að keyra yfir á rauðu eða grænu eða leggja gangstéttir.
    Local maður hérna sem er búinn að keyra mig til og frá hóteli talar alveg hreint út:  "Á Grikklandi viltu ekki búa, þetta er góður ferðamannastaður, búið."  Spillingu segir hann vera gegnumsýrða alls staðar, allt frá götusóparanum og upp í æðstu embættismenn.  Við sáum einu sinni sjúkrabíl koma æðandi að ná í einhvern sjúkann, þá sagði minn maður.  Ahh það er eins gott að þessi hafi pening á sér, annars er hann pottþétt dauður.  Svo reykir hver einanst kjaftur hérna... alveg ótrúlegt, á skrifstofunni, í fundarherbergjum, í leigubílum, örugglega í strætóum líka.  Svo segir local maðurinn mér að Aþena sé umkringd af fjöllum sem hleypa ekki menguninni út.  Já heyrðu ég gleymdi einu :) hérna búa um 5 milljónir manna og hér eru örugglega um 10 milljónir bíla.  Það er nefnilega svo sniðugt hérna að til að minnka bílaumferð í kringum miðbæinn, tóku hin spilltu yfirvöld uppá því að leyfa einungis bílum með oddatölu-bílnúmer á mán-mið-fös, en slétttölu-bílnúmer á þri-fim-lau-sun.  Með þessu ætluðu þau að minnka umferð.  En í staðinn eiga allir tvo bíla, með sínu hvoru bílnúmerinu odda og slétt.
    En þetta er nú allt sagt áður en ég hef getað skoðað svona helstu túristastaðina þannig að það getur nú vel verið að ég skipti rækilega um skoðun. 
    Legg af stað heim á föstudagsmorguninn þannig að ég hef tvö kvöld til að gera eitthvað skemmtilegt.
    Nóg í bili, H.