| Hrólfur Gestsso...'s profileLitli geimurinn minnPhotosBlogLists | Help |
|
February 14 Póstkort frá GrikklandiJæja haldiði ekki að blogg-service-ið sé hrokkið í gang hjá mér. Og ekki á verri stað en í Aþenu, Grikklandi. Hef haldið kynningu og setið fyrir svörum inní fundarherbergi með nokkrum illa rökuðum, háværum og keðjureykjandi Grikkjum. Ég held ég þurfi að kaupa mér nokkra nikótínplástra á leiðinni heim til að trappa mig niður. Ekki beint það sem flesu-hóstaeftirköstin mín þurftu á að halda.
En hvað get ég sagt um Grikkland. Jú hef ekki komist í að skoða nein söfn eða menningarminjar, heldur bara séð svona morgun traffíkina og síðan kvöld traffíkina. Hérna er annars alltaf traffík. Þetta er ekki skipulagt kaos, þetta er bara kaos. Hérna gera menn hlutina bara einhvern vegin, hvort sem það er að labba yfir götu, ákveða hvort þeir eigi að keyra yfir á rauðu eða grænu eða leggja gangstéttir.
Local maður hérna sem er búinn að keyra mig til og frá hóteli talar alveg hreint út: "Á Grikklandi viltu ekki búa, þetta er góður ferðamannastaður, búið." Spillingu segir hann vera gegnumsýrða alls staðar, allt frá götusóparanum og upp í æðstu embættismenn. Við sáum einu sinni sjúkrabíl koma æðandi að ná í einhvern sjúkann, þá sagði minn maður. Ahh það er eins gott að þessi hafi pening á sér, annars er hann pottþétt dauður. Svo reykir hver einanst kjaftur hérna... alveg ótrúlegt, á skrifstofunni, í fundarherbergjum, í leigubílum, örugglega í strætóum líka. Svo segir local maðurinn mér að Aþena sé umkringd af fjöllum sem hleypa ekki menguninni út. Já heyrðu ég gleymdi einu :) hérna búa um 5 milljónir manna og hér eru örugglega um 10 milljónir bíla. Það er nefnilega svo sniðugt hérna að til að minnka bílaumferð í kringum miðbæinn, tóku hin spilltu yfirvöld uppá því að leyfa einungis bílum með oddatölu-bílnúmer á mán-mið-fös, en slétttölu-bílnúmer á þri-fim-lau-sun. Með þessu ætluðu þau að minnka umferð. En í staðinn eiga allir tvo bíla, með sínu hvoru bílnúmerinu odda og slétt.
En þetta er nú allt sagt áður en ég hef getað skoðað svona helstu túristastaðina þannig að það getur nú vel verið að ég skipti rækilega um skoðun.
Legg af stað heim á föstudagsmorguninn þannig að ég hef tvö kvöld til að gera eitthvað skemmtilegt.
Nóg í bili, H. August 04 Af hlaupaafrekumHellú. Hljóp 5 km í gær í rigningu og roki í hinu svokallaða Vatnsmýrarhlaupi sem hér áður fyrr hét eitthvað í líkingu við Sri Shinmoy friðarhlaup. En well, nafnið dofnar sem og hálfrar mínútu friðarþögnin sem hér áður fyrr var, sem nú er orðið að 8 sek þögn nokkurra í bland við skvaldur flestra. Það var annars tekið gríðarlega á því, var fyrirfram búinn að stilla mig andlega á að gefa allt í botn, hlaupa hvern km á 4 mín sem gekk svona nokkurn veginn eftir; fyrsti á 4:04, næsti á 4:09 svo náði ég að taka vel á því í lokin og skilaði mér í mark á 20:28 sem allavega mínútu hraðar en mitt besta í þessari vegalengd. Þrefalt húrra fyrir mér: húrra húrra húrra.
Það er allavega verið að æfa á fullu fyrir Reykjavíkurmaraþon þar sem við Árni frændi ætlum að hvetja hvorn annan í gegnum alla 42km, það verður fróðlegt að vita hvernig það fer.
Meðfylgjandi er mynd af mér, birt með
July 06 Stór áfangi í pallagerð.Jæja, hengingarólin komin um hálsinn, boðskortin komin í umferð og því er bara að bretta upp ermarnar.
Tókst að ljúka því að koma pallinum á sinn stað þannig að þetta er allt að gerast.
Alltaf best að vinna undir pressu.
H. June 12 Sumarið framundan.Þá er maður loksins búinn með spænskuna. Örlítil seinkun miðað við upphaflega áætlun þar sem ég ætlaði að vera búinn miklu fyrr. En vegna einingagræðgi og ögn af áhuga á framandi löndum, þá ákvað ég að láta slag standa. Var annars bara fínn tími, sat tíma með fólki með mjög misjafnan bakgrunn, allt frá kjarnokueðlisfræðingum og uppí ræstitækna. En sem sagt skólinn frá í bili og vinnan blasir við, reyndar nóg að gera þar...eða svosum heima for that matter.
Er að leggja lokahönd á innanstokksmuni, hurðir, mála, flísaleggja og slíkt og var núna síðast að setja upp undirstöður undir pallinn sem meðfylgjandi mynd sýnir.
Meira síðar. June 02 Dóttirin malar pabba sinn í hlaupiÉg og Eva María tókum þátt í heilsuhlaupi krabbameinsfélagsins í gær og stúlkan heldur betur malaði kallinn, sbr www.hlaup.is:
66 22:31 Eva María Hrólfsdóttir 1999
67 22:32 Hrólfur Gestsson 1969 Hún var heldur betur lukkuleg, fékk eiginhandaráritun frá Miss world, mynd af sér með goðinu og til að toppa þá þá vann hún rómantískan kvöldverð á Hótel sögu ásamt hótelgistingu og morgunverði fyrir tvo!! Nú er bara að bíða og sjá hver hinn heppni fylgdarmaður verður. May 30 Sumarið er tíminn ... til að bloggaJæja hvað gerir maður seint á síðkvöldi, þegar uppáhaldsspjallfélaginn er farinn að sofa og þegar maður á að vera að gera eitthvað allt annað eins og að gera heimaverkefni í spænsku fyrir morgundaginn; jú auðvitað, maður bloggar, enda ekki komið nema rétt tæpt ár síðan síðast. (ég veit allavega að Ella verður glöð) Já það er nú svosum frá ýmsu að segja, skólinn búinn, þ.e. 15 eininga kvótinn, og er ég bara að lesa mig niður með smá hressandi spænskunámskeiði sem gefur jú 3 einingarnar sem mig vantaði fyrir jól. Ég gat samt ekki setið á mér, leið eins og kú sem sleppt var út að vori er ég búinn að stökkva hér um með afturlappirnar upp í loft, að laga íbúðina mína. Komast loks inní stofu fyrir ryki og drullu. Tja kannski ekki drullu en fullt af ryki og ókláruðu parketi, og óspörsluðum og ómáluðum veggjum. Þannig að ég ákvað að strax eftir hífandi rallið á miðvikudagskvöld með vinnunni að það skyldi hafist handa og ekki látum linnt fyrr er íbúðin væri orðin spling bling. Og ef það er eitthvað sem ég geri vel, þá er það að vinna eins og brjálæðingur, (með æðimisjöfnum árangri þó) sem ég og gerði, og í þetta sinn tel ég að árangurinn hafi ekki látið á sér standa. Myndir ætti að vera hægt að finna einhvers staðar hér á síðunni. Heyriði eitt dáldið fyndið, vinnufélagi mnn (ég sver það var ekki ég) sett auglýsingu um gitargrip.net á www.b2.is. Það skipti engum togum en á 5 dögum fóru 10.000 manns inn á síðuna sem er 1/5 frá því ég byrjaði með hana 2003. Svo segja menn að markaðsstjórar séu óþarfir. Jæja spænskan lærir sig ekki sjálf. Adios. August 27 Úr öskunni í eldhúsiðÞá er maður búinn að koma eldhúsinu í nothæft ástand enda ekki seinna vænna. Strax farinn að missa nætursvefn yfir stærðfræðilegri greiningu sem hefur nú þegar skollið á með fullum þunga.
Nothæft eldhús skv. skilgreiningu minni er "...helluborð sem getur hitað samtíimis kartöflur og sænskar kjötbollur ásamt því að hafa vask sem bæði gefur og tekur heitt vatn og er því nothæfur er til að vaska herlegheitin upp að lokinni máltíð". Og í gærkvöldi tókst mér að standast kjötbolluprófið með glans. Eins og myndirnar sýna komu að þessu verki jafnt smáir sem stórir, lítið sem mikið menntaðir tölvumenn enda um óvenju flókna en jafnframt vandaða smíð að ræða.
Nú get ég með öðrum orðum sest niður að skólabókum með góðri samvisku og ylmettan maga fram á næsta vor (eða þannig). |
|
|||||||||||||||
|
|